19september

it læs inn ðí æs opp sters

1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að
því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta
bara á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer
fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á
framfæri einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu ...

Endilega kvittið og segið hvort þið félluð fyrir þessu!

ps. Bart Simpson er heitur gaur, fokkaði upp síðustu skoðunarkönnun!
19. september 2006 klukkan 04:25
Þórsteinn Sigurðsson
1 athugasemd
17september

blogg1blogg2

Ég er loksins kominn með vinnu, sótti um hjá Hans Petersen fyrir u.þ.b. mánuði síðan og hef gjörsamlega legið á línunni hjá Geir. Geir stjórnar sem sagt hverjir fá vinnu og hverjir ekki.. Ég ákvað síðan á föstudaginn að hringja einu sinni enn í kauða. Og viti menn, doddi fékk vinnu og er mjög sáttur við það.
AMEN

Á föstudaginn var annað sem fékk mig til þess að brosa, Ég fór með Helga, Jeff og Sabbó á Forgotten Lores & Original Melody tónleika í stúdentakjallaranum.
Húsið opnaði kl 9, við mættum um 11 skíthræddir um að komast ekki inn..En allt gekk að óskum! Margt var um manninn, Dj stef með smá skífuskank og svo auðvitað FL & OM.
OM voru með mikið af gamla góða stöffinu en tóku eitthvað nýtt, sem hljómaði mjög vel.. Þegar þeir voru búnir að spila fór fólk að fara sem ég er enn að reyna að átta mig á, því að FL áttu eftir að spila...
FL voru tight, tóku mikið af nýju efni sem var ekkert lítið fresh..

Ég vil bara þakka fyrir mig, gott ókeypis kvöld sem ég gleymi seint.

17. september 2006 klukkan 23:49
Þórsteinn Sigurðsson
Engin athugasemd
10september

hiti eða kuldi?



Geoffrey er að gera góða hluti þessa dagana.

10. september 2006 klukkan 20:46
Þórsteinn Sigurðsson
1 athugasemd
08september

Þórsteinn Sigurðsson

  • Ég er kallaður Doddi
  • Ég er 18 ára
  • Ég á afmæli 15 jan
  • Ég er að læra ljósmyndun
  • Ég á 4ar systur
  • Ég á 2 bræður
  • Ég var í MH í 2 ár
  • Ég æfði knattspyrnu hjá KR
  • Ég á ekki kærustu
  • Ég ætla í Evrópuleiðangur 2007
  • Ég fíla flotta hönnun
  • Ég fíla strigana hans Geo
  • Ég elska Woodwood dk
  • Ég fíla Kim Jones
  • Ég elska Nike high top skó
  • Ég á voða góða mömmu
  • Ég ætla ekki að blogga um djammið mitt
  • Ég á marga góða vini
  • Ég er atvinnulaus
  • Ég var í Hlíðaskóla
  • Ég bý í 105
  • Ég fór á Hróarskeldu í sumar
  • Ég hlusta á hiphop
  • Ég fer á Prikið um helgar
08. september 2006 klukkan 20:43
Þórsteinn Sigurðsson
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Könnun

Ert þú með?

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...